Bjart fram eftir degi

Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður norðaustan 3-8 m/s bjart í fyrstu samkvæmt spá Veðurstofu Íslands, en skýjað með köflum og hiti um eða yfir frostmarki þegar kemur fram á daginn. Stöku él á morgun og hiti kringum frostmark.

Vegir í Húnavatnssýslu eru greiðfærir en hálkublettir eru á Öxnadalsheiði, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á miðvikudag:
Austan 3-10 m/s. Skúrir eða él við S- og V-ströndina og stöku él fyrir norðan og austan. Hiti 0 til 5 stig að deginum á S- og V-landi, annars 0 til 8 stiga frost, kaldast í innsveitum NA-til.

Á fimmtudag (skírdagur):
Hæg austlæg átt, skýjað með köflum og dálítil él við ströndina, en léttskýjað á NA-verðu landinu. Hiti breytist lítið.

Á föstudag (föstudagurinn langi):
Norðaustanátt og él, en úrkomulítið S-lands. Heldur kólnandi.

Á laugardag:
Austanátt og fremur kalt. Þurrt og bjart á V-verðu landinu, annars stöku él.

Á sunnudag (páskadagur) og mánudag (annar í páskum):
Austlæg átt og bjart veður, en skúrir eða él með S-ströndinni. Heldur hlýnandi.

Fleiri fréttir