Bjartsýnir bændur í Miðfirði

Nýbyggingin á Urriðaá. Mynd: Dagbjört Diljá Einþórsdóttir
Nýbyggingin á Urriðaá. Mynd: Dagbjört Diljá Einþórsdóttir

Sauðfjárbúskapur verður líklega seint talinn til gróðavænlegustu atvinnustarfsemi sem völ er á. Engu að síður má víða um land finna unga og bjartsýna bændur sem byggja ótrauðir upp jarðir sínar, þrátt fyrir lágt afurðaverð til bænda. Í nýjasta tölublaði Bændablaðsins er rætt við stórhuga bændur á tveimur bæjum í Miðfirðinum sem þessa dagana standa í stórræðum við útihúsabyggingar á bæjum sínum.

Á Urriðaá búa þau Dagbjört Diljá Einþórsdóttir og Ólafur Rúnar Ólafsson ásamt tveimur ungum börnum sínum. Þau búa með hátt í 700 fjár og segir Ólafur að ekki sé ætlunin að fjölga fénu að ráði, heldur sé tilgangur nýju fjárhúsanna að auka plássið og bæta aðstöðu fyrir vorið en ætlunin er að húsið verði tilbúið fyrir sauðburðinn í vor.

Ólafur segir að þeir nágrannarnir, hann og Ari G. Guðmundsson sem býr á þarnæsta bæ, Bergsstöðum, hafi að mestu unnið tveir að byggingunum. „Hann er smiður og við höfum að mestu verið tveir að vinna í þessu. Þar er um að ræða alveg eins hús. Við fórum saman í þetta verkefni, að reisa tvö 300 fermetra stálgrindarhús sem eru klædd með yleiningu,“ segir Ólafur í viðtali við Bændablaðið.

„Það gengur bara ljómandi vel í sauðfjárbúskapnum,“ sagði Ólafur. Hann segir að lífið gangi sinn vanagang, en lítill sem enginn snjór hafi verið í haust þar til nú nýlega, en talsvert frost hefur þó verið að undanförnu. 

Spurður um afkomuna eftir sumarið og haustslátrun segir Ólafur að árið hafi verið algjört metár með fallþunga að meðaltali yfir 20 kíló. „Það mætti svo sem alltaf fást meira fyrir afurðirnar, en það er samt ekkert hægt að kvarta. Þegar maður leggur sig allan fram við þetta, þá held ég að það sé vel hægt að hafa eitthvað upp úr þessu.“

Afkoman einnig góð á Bergsstöðum

Húsasmiðurinn og bóndinn, Ari G. Guðmundsson, býr á Bergsstöðum ásamt fjölskyldu. Þau eru með 620 fjár og rétt eins og á Urriðaá er tilgangur byggingarinnar að bæta þá aðstöðu sem fyrir er en ekki er ætlunin að fjölga fé.

„Við höfum verið að nýta vélageymsluna og hlöðu undir sauðburðinn á vorin, en með tilkomu á þessu húsi þurfum við þess ekki lengur,“ segir Ari. 

Ari segir að stefnt sé að því að klára að loka húsunum fyrir jól. Vissulega megi segja að bygging fjárhúsa í sveitum teljist til tíðinda nú til dags þegar sauðfjárbændur séu líklega frekar að hugsa um að skella í lás. – „Þetta er náttúrlega bilun,“ segir Ari og hlær. 

Eins og á Urriðaá var afraksturinn út úr sauðfjárræktinni á Bergsstöðum mjög góðurþetta árið. 

„Fallþunginn var rétt tæp 20 kíló að meðaltali hjá okkur og þetta er algjört metár og ræktunin hefur því verið að koma vel út. Við kvörtum svo sem ekkert, en það er auðvitað galið að skilaverðið til okkar frá afurðastöð sé ekki nema 500 krónur á kílóið. Það má alveg segja að það sé skrítið þegar staðan er orðin sú hjá mörgum sauðfjárbændum að þeir séu að fá meira í stuðningsgreiðslur en þeir fá fyrir afurðir sínar. Það er eitthvað skakkt við slíkt,“ segir Ari G. Guðmundsson.  

 

Fleiri fréttir