Björgunaræfingar á sjó

Björgunarsveitirnar Strönd á Skagaströnd og Húnar í Húnaþingi voru með björgunaræfingu á sjó síðastliðinn sunnudag. Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-LIF, björgunarskipið Húnabjörg frá Skagaströnd og björgunarbáturinn Birna frá Hvammstanga tóku einnig þátt í æfingunni.

Samkvæmt vef Björgunarsveitarinnar Strandar var þetta þriðja eða fjórða tilraun til að hafa svo umfangsmikla björgunaræfingu en hefur alltaf eitthvað komið uppá til að koma í veg fyrir hana en á sunnudaginn gekk allt eftir.

Þyrlan mætti til Skagastrandar upp úr kl. 16 og Húnar komu frá Hvammstanga á björgunarbátnum Birnu, sem þeir festu nýverið kaup á. Saman héldu svo allir vestur fyrir Höfðann þar sem björgunaræfingin fór fram.

Veðrið var ekki upp á marga fiska en vindur var norðaustanstæður 11-14 m/s og rigningarsuddi sem í raun voru ágætar aðstæður til björgunaræfinga, þar sem veður er ekki alltaf eins og best er á kosið þegar neyðin kallar.

Æfðar voru hífingar á fólki þar sem menn voru hífðir að og frá borði Húnabjargar. Svo var æft að hífa úr björgunarbát og úr sjó og loks að hífa í og úr harðbotnabát.

Fleiri fréttir