Björgunarsveitir á Norðurlandi vestra kallaðar út

Nokkrar björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út seint í gærkvöldi og voru að störfum fram á nótt. Nýjum verkefnum fækkaði fljótlega eftir miðnætti og var þeim flestum lokið á fjórða tímanum. Bílar frá björgunarsveitum á Hvammstanga, Skagaströnd og Blönduósi voru á Kili fram á nótt og aðstoðuðu þar ferðafólk sem hafði fest bíla sína.

Þá voru björgunarsveitamenn frá Varmahlíð og Sauðárkróki kallaðar út snemma í morgun til að aðstoða starfsmenn RARIK við að berja ís af raflínum. Á heimasíðu Landsbjargar segir að ekki sé vitað hvenær því verki verður lokið.

Á Laugarvatni voru tvö verkefni , festa þurfti þak á íbúðarhúsi og tryggja hurð á útigeymslu sem var við að fjúka upp.

Sveitin í Vestmannaeyjum var kölluð út þegar þakplötur fóru að fjúka af íbúðarhúsi.

Fleiri fréttir