Bjórkvöld fyrir fjarnema Háskólans á Hólum

Fjarnemar Háskólans á Hólum ætla að hrista sig saman á bjórkvöldi sem haldið verður fyrir þá á Glaumbar í Reykjavík en að sögn Völu Kristínar Ófeigsdóttur er þetta liður í verkefni við skólann. -Þannig er mál með vexti að ég ásamt fjórum öðrum stúlkum erum í námskeiði sem heitir Hátíðir og viðburðir og eitt verkefnanna í námskeiðinu er að halda viðburð. Við eigum það allt sameiginlegt að vera fjarnemar og okkur langaði til að hrista hópinn örlítið saman með einhverri uppákomu, segir Vala og því var ákveðið að halda bjórkvöldið sem hefst kl. 21:00 annað kvöld.

Vala Kristín segir að alls séu 170 fjarnemar við Háskólann á Hólum. Viðburður þeirra stallsystra er hluti af stærra verkefni í námskeiðinu Hátíðir og viðburðir en engin sérstök fyrirmæli voru um tegund viðburðar af hálfu kennarans.

-Þar sem við erum allar fjarnemar þótti okkur bráðvanta viðburð sem mundi gera okkur fjarnemum kleift að hittast í óformlegu spjalli og eiga saman góða stund. Á Glaumbar tökum við á móti fjarnemum, förum í létta leiki og hristum hópinn saman. Einnig verður hægt að fá sér einn kaldan á gjafaverði, segir Vala Kristín.

Fleiri fréttir