Björn Líndal Traustason ráðinn framkvæmdastjóri SSNV
Björn Líndal Traustason á Hvammstanga hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri SSNV. Var tilkynnt um ráðningu hans í morgun á ársþingi SSNV, sem nú stendur yfir á Blönduósi. Áformað er að Björn taki til starfa um miðjan nóvember.
Björn er borinn og barnfæddur Húnvetningur og hefur lengst af búið að Hvammstanga. Hann lauk nýverið námi í viðskiptalögfræði við Háskólann á Bifröst og stundar nú nám í skattarétti og reikningsskilum við HÍ. Síðustu sautján árin hefur Björn starfað í bankageiranum.
„Það er ljóst að það eru næg verkefni framundan” sagði Björn aðspurður um hvernig nýja starfið legðist í hann. „Stóra málið hlýtur að vera að sporna við fólksfækkun og neikvæðri byggðaþróun, m.a. með því að fjölga atvinnutækifærum,” sagði Björn í samtali við blaðamann Feykis.