Björn nýr héraðsdýralæknir í Norðvestur umdæmi

Matvælastofnun hefur ráðið  Björn Steinbjörnsson dýralækni til að taka við  embætti héraðsdýralæknis í  Norðvestur umdæmi frá og með næstu áramótum og verður aðsetur hans á umdæmisskrifstofunni á Sauðárkróki.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá Matvælastofnun hefur Björn unnið hjá stofnuninni og fyrirrennurum hennar frá því um 2000 - fyrst sem héraðsdýralæknir á Austurlandsumdæmi nyrðra - síðan sem dýralæknir inn- og útflutningseftirlits og nú síðustu árin sem dýralæknir svínasjúkdóma og  einnig  sem dýralæknir lyfjamála.

Fleiri fréttir