Bjórsafnari á Blönduósi

Á Blönduósi er líkast til eitt stærsta bjórsafn landsins í einkaeigu og telur tæpar 400 flöskur. „Sumir myndu segja að það væri klikkað að vera safna svona en mér finnst þetta bara gaman, þetta er svo öðruvísi,“ sagði Margrét Þorsteinsdóttir, kölluð Gréta, þegar blaðamaður Feykis leit inn til hennar á dögunum. 

„Ég ákvað þetta fyrir einhverjum þremur árum síðan - nú er ég bara hætt að drekka og er farin að safna bjór,“ segir hún og hlær. Flöskusafnið prýðir einn vegginn í stofunni og er þeim raðað á hillur byggðar úr vörubrettum. Í nýjasta tölublaði Feykis er viðtal sem Berglind Þorsteinsdóttir ritstjóri tók við Margréti.

Fleiri fréttir