Blanda áfram í þriðja sæti
Blanda er nú í þriðja sæti yfir aflahæstu laxveiðiár landsins og hefur heldur hægst á veiðinni þar, en í síðustu viku skipaði áin annað sætið á listanum. Vikuveiðin þar var 192 laxar, samkvæmt nýjustu veiðitölum á angling.is. Á sama tíma var vikuveiðin i Miðfjarðará 382 laxar.
Eftirfarandi ár eru á lista yfir 75 aflahæstu laxveiðiár landsins. Dálkurinn vinstra megin sýnir fjölda veiddra laxa það sem af er sumri en dálkurinn hægra megin heildarveiðina 2015.
Blanda 1492 4829
Miðfjarðará 1459 6028
Víðidalsá 425 1626
Vatnsdalsá 338 1238
Laxá á Ásum 225 1795
Svartá 115 619
Hrútafjarðará og Síká 102 860
Fljótaá 39 142