Blanda og Miðfjarðará á góðu róli
Blanda heldur þriðja sætinu sem aflahæsta laxveiðiá landsins þetta sumarið en í gær voru komnir 1929 laxar úr ánni, sem er rúmlega helmingi fleiri en veiddust allt sumarið í fyrra. Á tæplega fjörtíu ára tímabili hefur veiðin í ánni aðeins fimm sinnum farið yfir 2000 laxa, svo þetta er með betri veiðiárum í langan tíma.
Miðfjarðarár hefur stokkið upp í fjórða sætið en þar höfðu veiðst 1552 laxar í gær. Í öðrum ám á Norðurlandi vestra sem komast á lista yfir 75 aflahæstu árnar var heildarveiði sumarsins eftirfarandi, samkvæmt tölum gærdagsins:
Laxá á Ásum 561
Vatnsdalsá í Húnaþingi 494
Víðidalsá 370
Hrútafjarðará og Síká 240
Svartá í Húnavatnssýslu 137
Fljótaá 92