Blanda og Strönd koma til aðstoðar á Kjalvegi
Björgunarsveitirnar Strönd og Blanda bárust beiðni um aðstoð á Kjalvegi upp úr kl. 20 sl. föstudagskvöld þar sem bíll sat fastur í krapa. Þegar komið var á staðinn var búið að ná bílnum upp með aðstoð jeppamanna á tveimur jeppum sem voru þar á ferð og óku fram á þá fasta.
„Krapi og drulla eru einhverjar verst festur sem hægt er að lenda í og eru menn löngu búnir að læra að betra er að senda tvo bíla strax, en þurfa svo kannski að bíða eftir liðsauka síðar meir. Nú svo geta þeir sem aðstoða eiga sjálfir orðið ósjálfbjarga í krapa og drullu og þá betra að vera fleiri á ferð en að vera einbíla,“ segir á heimasíðu Björgunarsveitarinnar.
Samkvæmt heimasíðunni gekk ferðin mjög vel og var nánast auður vegur þar til komið var að Kvennabrekku, en þar byrjaði smá snjór en ekkert að ráði.
Þegar nánari fréttir bárust af bílnum var ljóst að hann væri fastur í læk suðvestan við Dúfunefsfell og að ökumaður og farþegar væru búnir að reyna mikið til að losa bílinn, nánast hreinsa allt í kringum hann þannig að ekki ætti að þurfa mikið til að ná honum upp. Sem fyrr segir var búið að ná bílnum upp þegar komið var á staðinn með aðstoð jeppamanna á tveimur jeppum sem voru þar á ferð.
Ferðalangarnir höfðu orð á því að þeim væri þætti verst að vera búnir að „plata“ þá alla þessa leið en var sagt að hafa ekki áhyggjur af því, „það væri bara ágætt að fá sér svona góðan kvöldrúnt,“ svöruðu björgunarsveitarmenn. Ferðalangarnir slógust svo í för með Blöndu og Strönd til byggða og gekk það að þeirra sögn bara vel.