Blautt og hvasst framundan
Veðurstofa Íslands sáir norðaustan 5-10, skýjað en úrkomulítið í dag en norðaustan og austan 8-15 og rigning í kvöld, hvassast á annesjum. Suðaustan 8-15 og skýjað með köflum á morgun. Hiti 6 til 10 stig, en hlýnar á morgun. Viðvörun: Spáð er suðaustan stormi við SV-ströndina í nótt, en vestast á landinu á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Gengur í suðaustan 13-20 m/s með rigningu, einkum SA-lands, en 18-23 SV- og V-lands seinnipartinn. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast fyrir norðan.
Á laugardag:
Suðvestan hvassviðri með skúrum, en hægari NA-lands og úrkomulítið. Dregur úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn. Heldur kólnandi.
Á sunnudag:
Vestlæg eða breytileg átt og rigning, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 5 til 10 stig.
Á mánudag:
Norðaustanátt með rigningu, einkum SA- og A-lands, en slyddu fyrir norðan. Kólnandi veður og næturfrost í innsveitum.
Á þriðjudag:
Norðanátt með slyddu eða rigningu, en léttir til S- og V-lands. Svalt í veðri.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir sunnanátt með vætu og hlýnandi, en áfram þurrt og kalt NA-lands.