Blóðsykursmælingar á Skagaströnd

Lionsklúbbur Skagastrandar ætlar að bjóða upp á ókeypis blóðsykursmælingar í tengslum við skötuveisluna í Fellsborg á Þorláksmessu. Verkefnið er unnið í samstarfi við Heilsugæsluna á Skagaströnd.

Í tilkynningu frá Lionsklúbbnum segir að mælingar á blóðsykri sé tiltölulega einföld mæling sem gefi til kynna hvort fólk sé með sykursýki  eða ekki. Lionsklúbburinn hvetur fólk til að nýta sér þessa þjónustu

Fleiri fréttir