Blóðsykursmælingar á Þorláksmessu
Lionsklúbbur Skagastrandar hefur ákveðið að bjóða upp á ókeypis blóðsykursmælingar í tengslum við skötuveislu í Fellsborg á Þorláksmessu. Á heimasíðu Skagastrandar segir að mælingar á blóðsykri er tiltölulega einföld mæling sem getur gefið til kynna hvort fólk sé með sykursýki eða ekki.
Verkefnið er unnið í samstarfi við Heilsugæsluna á Skagaströnd.
„Fólk er hvatt til þess að nýta sér þessa þjónustu,“ segir á heimasíðu Skagastrandar.