Blöndósingur í Norræna ljósinu

Þrír Norðlendingar, þar á meðal einn Blönduósingur, taka þátt í Norræna ljósinu 2014 en það eru þau Úlfur Logason og Sandra Wanda Walankiewicz frá Akureyri og Jón Ægir Jónsson frá Blönduósi. Norræna ljósið er menningarhátíð fyrir unga og upprennandi listamenn og sú umfangsmesta sem haldin hefur verið fyrir ungmenni á Norðurlöndum.

Norræna ljósið 2014 byggir á fimm listgreinum, dansi, sjónlist, leiklist, sirkus og tónlist. Fyrir þá 15 þátttakendur sem veljast í hvern og einn listhóp (alls 75) er hátíðin einstakt tækifæri til að þróa sína listrænu hæfileika, vinna með öðrum skapandi ungmennum, kynnast nýrri og gamalli menningu og njóta leiðsagnar þekktra listamanna frá Norðurlöndunum.

Hver listhópur ferðast í fylgd síns aðal-listamanns og eins fararstjóra og tekur þátt í þremur vinnustofum á ólíkum stöðum. Í hverri vinnustofu er unnið með þarlendum listamönnum. Að lokum koma allir listhóparnir saman í Joensuu í Finlandi og vinna saman að lokasýningu hátíðarinnar undir stjórn aðal-listamanna fimm og Tero Sarkkinen, listræns stjórnanda hátíðarinnar.

Danshópurinn byrjar í 3ja daga þjóðdansavinnustofu í Þórshöfn í Færeyjum og heldur svo til Kaupmannahafnar þar sem hópurinn tekur þátt í 2ja daga Street-Dance vinnustofu. Þaðan liggur leiðin til Bergen í Noregi í 2ja daga vinnustofu í nútímadansi. Að henni lokinni fer danshópurinn til Joensuu í Finlandi.

Tónlistarhópurinn fer fyrst í vinnustofu til Ilulissat á vesturströnd Grænlands. Þar verður unnið með grænlenskum tónlistamönnum út frá Inúita-trommunni. Þá kemur tónlistarhópurinn til Garðabæjar í 2ja daga raftónlistar-vinnustofu með íslenskum tónlistarmönnum. Því næst er farið til Utsjoka nyrst finnska Lapplandi í 2ja daga vinnustofa með samískum joik tónlistarmönnum. Svo fer tónlistarhópurinn til Joensuu.

Sirkushópurinn byrjar í 3ja daga vinnustofu í Danmörku. Þaðan er farið í 2ja daga vinnustofu hjá Circus Circör í Botkyrka í Svíþjóð og loks í síðustu 2ja daga vinnustofuna hjá Helsinki Sirkusnum. Eftir það liggur leiðin til Joensuu.

Leiklistarhópurinn er með sína fyrstu vinnustofu í Longyearbyen á Svalbarða í 3 daga. Hópurinn fer svo til Tromsö í Noregi í 2ja daga vinnustofu í samstarfi við Kulta ungmennaleikhúsið og loks liggur leiðin til Pajala í Svíþjóð þar sem 2ja daga vinnustofa verður haldin í samstarfi við Tornedalsteatret. Frá Pajala fer leiklistarhópurinn til Joensuu.

Sjónlistahópurinn er með sína fyrstu vinnustofu á Akureyri og nágrenni. Hún verður í 3 daga en þvínæst ferðast hópurinn til Mariahamn á Álandseyjum í 2ja daga vinnustofu. Frá Álandseyjum tekur sjónlistahópurinn litla lykkju út fyrir Norðurlöndin og fer í 2ja daga vinnustofu í Parnö í Eistlandi. Þaðan liggur leið hópsins til Joensuu.

Í öllum vinnustofum listhópanna fimm verða, auk þeirra 15 sem tilheyra hverjum listahóp, jafnmargir þáttakendur frá hverjum og einum stað. Til dæmis mun 15 íslenskum ungmennum standa til boða að taka þátt í raftónlistarvinnustofunni í Reykjavík. Í Joensuu verður svo 100 ungmennum boðið að taka þátt í lokavinnustofunni og vinna með öllum 75 þáttakendunum úr listahópunum að lokasýningu hátíðarinnar. Með þessu fyrirkomulagi er Norræna ljósið 2014 ekki aðeins einstakt tækifæri fyrir þau 75 ungmenni sem veljast í listahópana, heldur ekki síður fyrir hin 325 ungmennin sem taka þátt í vinnustofum í sínum heimabæjum og borgum.

Sjá nánari upplýsingar um Norræna ljósið 2014 hér

Fleiri fréttir