Blöndubrú lagfærð í sumar

Til stendur að lagfæra brúna yfir Blöndu í sumar. Mynd: KSE
Til stendur að lagfæra brúna yfir Blöndu í sumar. Mynd: KSE

Vegagerðin stefnir að úrbótum á Blöndubrú í sumar þar sem tekin verður steypt stétt sunnan megin af brúnni og brúargólfið verður malbikað. Þá þarf að breikka veginn sitt hvoru megin við brúnna. Frá þessu er sagt á vefsíðu Blönduósbæjar.

Rætt var um áformaðar lagfæringar á brúnni á fundi sem fulltrúar Blönduósbæjar áttu með svæðisstjóra Vegagerðarinnar. Einnig var rætt um lausagöngu búfjár með þjóðvegi 1 og úrbætur í þeim efnum. Vegagerðin mun í sumar taka út girðingar meðfram þjóðvegi 1 og koma með tillögur til úrbóta í kjölfarið.

Fleiri fréttir