Blöndubrú verr farin en við var búist

Framkvæmdum á Blöndubrú er að ljúka. Hafa þær staðið yfir síðan í ágúst. „Þetta hefur gengið vel en hún var bara miklu verr farin en við gerðum ráð fyrir, þannig þetta var því miklu stærri aðgerð en var áætlað,“ sagði Sigurður Hallur Sigurðsson, verkstjóri hjá Vegagerðinni, í samtali við Feyki.
„Við tókum utan af henni allan útkantinn, alveg inn að bita, sem er einn og fimmtíu, og steyptum það nýtt. Tókum svo ofan af öllu gólfinu og steyptum það nýtt líka. Settum svo ný vegrið, þannig að hún er ansi mikið endurnýjuð,“ segir Hallur m.a. í frétt á forsíðu 4. tölublaðs Feykis sem kom út í dag.