Blönduhlaup 20. júlí nk.

Blönduhlaup verður haldið laugardaginn 20. júlí kl. 11:00 í tengslum við sumarhátíðina Húnavöku á Blönduósi. Sumarhátíðin Húnavaka er fjölskylduhátíð og því verður mikið um að vera á Blönduósi fyrir alla fjölskylduna þessa helgi.

Aldursflokkaskipting og vegalengdir
Aldursflokkaskipting og vegalengdir, bæði kyn:

  • 2,5 km: 12 ára og yngri (skemmtiskokk er í boði fyrir alla aldurshópa, en verðlaunapeningar bara fyrir 12 ára og yngri)
  • 5 km: 15 ára og yngri, 16 ára og eldri.
  • 10 km: 29 ára og yngri 30-39 ára, 40-49 ára og 50 ára og eldri.

Hlaupaleiðin verður bæði á götum og stígum umhverfis Blöndu.
Tímataka verður í öllum vegalengdum.
Hlaupið hefst á planinu fyrir framan Félagsheimilið á Blönduósi og endar einnig þar.
Keppendur í öllum vegalengdum hefja keppni samtímis.

Verðlaun
Verðlaun eru veitt fyrir fyrsta sæti í hverjum aldursflokki (fyrir utan skemmtiskokkið). Allir keppendur sem ljúka hlaupinu fá viðurkenningarskjal með skráðum árangri. Dregið er um fjölda útdráttarverðlauna.

Skráningargjald
Þátttökugjald er 1.000 kr fyrir 16 ára og eldri en 500 kr fyrir 15 ára og yngri.

Nánari upplýsingar og skráning
Upplýsingar og skráning sendist á usah@simnet.is. Óskað er eftir forskráningu en annars hefst skráning kl. 10:00 á keppnisdag í félagsheimilinu.

Fleiri fréttir