Blönduós fagnar 150 ára afmæli
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Mannlíf
02.11.2026
kl. 15.37
Hátíðahöld í tilefni 150 ára afmælis Blönduóss fara fram laugardaginn 7. nóvember 2026. Forseti Íslands mun heiðra samkomuna með nærveru sinni og afhjúpa minnisvarða um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur í lok hátíðardagskrár.
Árið 2026 eru liðin 150 ár frá því að verslun hófst á Blönduósi árið 1876. Upphaf verslunar markaði tímamót í sögu byggðarinnar og lagði grunninn að þróun Blönduóss sem verslunar-, þjónustu- og síðar stjórnsýslukjarna fyrir Húnavatnssýslur. Á þessum 150 árum hefur Blönduós tekið miklum breytingum og hefur byggðin þróast í öflugt samfélag Húnabyggðar þar sem verslun, þjónusta, menntun, landbúnaður og atvinnulíf hafa skipað mikilvægan sess.
Hátíðardagskránni lýkur með því að forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, afhjúpar minnisvarða um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, eins helsta brautryðjanda kvenréttindabaráttu á Íslandi, sem afhentur var sveitarfélaginu fyrr á árinu. Bríet fæddist að Haukagili í Vatnsdal árið 1856 og átti rætur sínar í því samfélagi sem nú tilheyrir Húnabyggð. Hún var frumkvöðull í baráttu fyrir menntun, kosningarétti og jafnri samfélagsþátttöku kvenna. Þannig verður hátíðin ekki aðeins tilefni til að fagna 150 ára sögu Blönduóss, heldur einnig til að minna á mikilvægi sveitarfélaga sem grunnstoða lýðræðisins og heiðra þá baráttu fyrir jafnrétti og mannréttindum sem hefur mótað íslenskt samfélag.
Nánari dagskrá hátíðarinnar er hægt að sjá hér að neðan:

