Grunnskólinn austan Vatna þriðja árið í röð í úrslitum Málæðis

Óskar Bjarni og Monika Rut sömdu textann. MYND AF GAV.IS
Óskar Bjarni og Monika Rut sömdu textann. MYND AF GAV.IS

Unglingastig GAV tók þátt í verkefnavinnu á vegum Málæðis nú í haust en kagahöfundurinn og íslenskufræðingurinn magnaði, Bragi Valdimar Skúlason sem oft er kenndur við Baggalút, samdi laglínu. Bauðst nemendum um allt land síðan að semja texta við lagið.

Í tilkynningu á síðu GaV segir: „Nemendur á unglingastigi GAV unnu verkefnið í hópum og skiluðu inn textum. Verkefnið var tímafrekt og krafðist mikillar þolinmæði og þrautseigju enda reyndist snúið að láta texta passa við lagið. Lag Braga er rólegt og fallegt og umfjöllunarefni textanna sem sendir voru inn í takt við það. Textarnir fjölluðu um missi, stríð, slys og áföll.

Salka Sól syngur lagið

Texti Óskars Bjarna og Moniku Rutar, um aldraðan mann sem misst hefur eiginkonu sína, heillaði dómnefnd og var valinn áfram. Nú hefur Bragi Valdimar fullklárað textann og Salka Sól sungið lagið í stúdíó. Við erum ótrúlega stolt af nemendum okkar og hlökkum mikið til að heyra lokaútkomuna á laginu í þættinum Málæði sem verður sýndur á RÚV á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember. Við hvetjum auðvitað alla til að horfa á þáttinn.

Innilega til hamingju Óskar Bjarni og Monika Rut með fallegan texta.

Við óskum Völu Kristínu, íslenskukennara unglingastigs, einnig til hamingju og þökkum henni fyrir metnaðarfullt starf með nemendum. Það er einstaklega ánægjulegt að sjá afrakstur góðrar vinnu nemenda og kennara í skemmtilegu og skapandi verkefni eins og Málæði.“

Stórmerkilegur árangur hjá nemendum út að austan – til hamingju!

Stjarnan mín skær

Stjarnan mín skær,
ástin mín kær,
ég finn þig enn í hverri stund.
Hjartslættinum,
morgunbollanum,
— og gönguferðunum.

Miðnæturstjarna sem skín.
aknar þú mín eins og ég sakna þín?
Ég kannast ekki við mig þegar þú ert ekki hér.
(Ég) kann bara'að vera með þér.
Vertu hjá mér.

Dreg andann djúpt,
man brosið þitt svo ljúft.
Ég minnist alls sem þú gafst mér.
Á síðkvöldum
(með) löngum samtölum,
og öllum góðu stundunum.

Miðnæturstjarna sem skín.
Saknar þú mín eins og ég sakna þín?
Ég kannast ekki við mig þegar þú ert ekki hér.
(Ég) kann bara'að vera með þér.
Vertu hjá mér.

Höfundar: Óskar Bjarni og Monika Rut.

Fleiri fréttir