Blönduósbær endurfjármagnar lán
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
14.02.2013
kl. 10.03
Bæjarstjórn Blönduósbæjar hefur samþykkt að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð 40 milljónir kr. til að endurfjármagna afborganir sveitarfélagsins hjá Lánasjóði sveitarfélaga á árinu 2013. Þetta kemur fram í fundargerð frá 12. febrúar sl.
Í fundargerð kemur fram að til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins.
