Blönduósbær með hæst hlutfall erlendra ríkisborgara á Norðurlandi vestra

Hlutfall erlendra ríkisborgara eftir landshlutum 1. desember 2019 og 2020. Mynd:skra.is
Hlutfall erlendra ríkisborgara eftir landshlutum 1. desember 2019 og 2020. Mynd:skra.is

Þjóðskrá Íslands birti nýlega upplýsingar um fjölda erlendra ríkisborgara með skráða búsetu hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 1. desember 2020. Hlutfall erlendra ríkisborgara er afar breytilegt milli sveitarfélaga, frá rúmum 44% niður í 1% en að jafnaði er hlutfallið um 14% sé horft til allra sveitarfélaga.

Hæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Mýrdalshreppi þar sem 47,3% íbúa hreppsins hafa erlent ríkisfang en lægst er hlutfallið í Árneshreppi þar sem einn íbúi er með erlent ríkisfang sem gerir rúm 2,5% íbúa. Sá landshluti sem hefur hæst hlutfall íbúa með erlent ríkisfang eru Suðurnes með 23,4% íbúa og Vestfirðir koma næst með 17,1% íbúa. Lægsta hlutfall íbúa með erlend ríkisfang er á Norðurlandi eystra, 8,2%, og næstlægst er Norðurland vestra með 9,1%.

Blönduósbær er það sveitarfélag á Norðurlandi vestra sem hefur hæst hlutfall erlendra ríkisborgara eða 14,6% sem eru 140 íbúar. Næsthæst hlutfall er í Húnaþingi vestra en þar eru 136 erlendir ríkisborgarar eða 11,2%. Í Akrahreppi er hlutfallið 9,5% sem eru 20 íbúar, 7,8% búa í Sveitarfélaginu Skagafirði eða 675 manns, 7,4% í Sveitarfélaginu Skagaströnd eða 35 manns og í Húnavatnshreppi 5,4% sem eru 20 erlendir ríkisborgarar. Lægst er hlutfallið í Skagabyggð, 4,3% eða fjórir íbúar með erlent ríkisfang.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir