Blönduósbær tekur 95 milljón króna lán
Sveitarstjórn Blönduósbæjar hefur ákveðið að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 95.000.000 kr. til 13 ára til að fjármagna framkvæmdir við nýju sundlaugina.
Þetta var samþykkt á fundi bæjarráðs í gær og var Arnari Þór Sævarssyni bæjarstjóra veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Blönduósbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Skilmálarnir eru lán til 2024 og lánskjör 4,35%.
Á fundinum óskaði Bæjarráð eftir upplýsingum hvenær vænta megi lokaskýrslu um sundlaugarframkvæmdina enfram kom að verið væri að leggja lokahönd á hana.
