Blönduósbær tilbúinn fyrir gagnaver
Fá sveitarfélög eru jafn vel undirbúin fyrir uppbyggingu gagnavers og Blönduósbær en slík starfsemi gæti hafist þar með skömmum fyrirvara. Íslandsstofa valdi Blönduós til samstarfs til að kynna landið sem vænlegan kost fyrir gagnaver. Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV.
Blönduósbær var eitt fjölmargra sveitarfélaga sem á sínum tíma gengu til samstarfs við fyrirtæki sem voru áhugasöm um gagnaver. Lengst gengu viðræður við Greenstone sem hafði uppi stór áform á Blönduósi en hætti við vorið 2012. En gagnaver er ennþá ofarlega á blaði á Blönduósi og bæjarstjórinn, Arnar Þór Sævarsson, segir áhuga erlendra stórfyrirtækja enn fyrir hendi.
„Já, já það eru alltaf aðilar sem að eru að banka á dyrnar og vilja skoða landið. Við teljum okkur vera í mjög sterkri stöðu til þess að til að geta boðið upp á mjög gott land, byggingarland.“ Þarna vísar Arnar í nýlegt deiliskipulag þar sem 270 hektara land er sérstaklega eyrnamerkt gagnaveri.
Þá segir hann nálægðina við Blönduvirkjun skipta máli auk þess sem fyrir séu sterkar gagnatengingar og fleira sem gerir svæðið hagstætt fyrir gagnaver. Þessi vinna heimamanna á Blönduósi hefur orðið til þess að Íslandsstofa valdi þá til samstarfs og hafa fulltrúar þaðan farið á erlendar ráðstefnur og kynnt Ísland sem vænlegan kost fyrir gagnaver.
„Við náttúrulega reynum að láta ljós okkar skína á þessum ráðstefnum og reynum að auglýsa þetta eins vel og við getum og það eru alltaf einhverjir aðilar sem sýna þessu áhuga, vissulega,“ sagði Arnar Þór í samtali við RÚV.