Blönduósingar halda sínu striki
Fyrirtækið Greenstone ehf. sem hafði milligöngu fyrir uppbyggingu gagnavers á Blönduósi hefur sagt sig frá verkinu en fyrirtækið hefur unnið að því að reisa gagnaver hér á landi, fyrir hönd bandarísks fyrirtækis, frá árinu 2008. Bæjaryfirvöld á Blönduósi hafa unnið hörðum höndum sl. ár að undirbúningi fyrir komu gagnaversins og að sögn Arnars Þórs Sævarssonar bæjarstjóra Blönduóss hefur þetta engin áhrif á skuldbindingu þeirra í að koma því á laggirnar.
„Bandaríska fyrirtækið sem hefur í hyggju að reisa hér gagnaver hefur tjáð okkur að þeir hafa ekki látið af áformum sínum,“ segir Arnar Þór í samtali við Feyki. Þó svo að Greenstone treysti sér ekki í að halda málinu til streitu og sagt sig frá verkinu segir Arnar Þór að viðræður munu halda áfram án milligönguaðila.
„Gagnaverið mun hafa mikla þýðingu fyrir allt Norðurland vestra og Ísland í heild. Störfum fjölgar á svæðinu, sprotafyrirtæki koma til með að spretta upp í tengslum við starfsemina og þannig skapast gjaldeyristekjur í þjóðarbúið,“ segir Arnar Þór.
Arnar Þór segir gagnaver vera mjög eftirsóttan iðnað í mörgum löndum. Margar þjóðir hafa fjárfest háar fjárhæðir til að laða að slíkan iðnað. Jafnframt sagði hann vera staðreynd að Ísland var ekki samkeppnishæft til að taka við gagnaverum fyrr en gerðar voru breytingar á reglum um virðisaukaskatt til slíks iðnaðar en þær tóku gildi áramótin 2010-2011. „Við teljum að staðan í dag sé góð og við munum halda áfram okkar striki, enda eru staðarkostirnir fyrir hendi,“ bætir hann við.
Blönduós er tilvalin staður fyrir gagnaver fyrir margar sakir. Arnar Þór segir nokkur atriði vega þar þyngst en þau eru: Góðar raforkutengingar, mikið öryggi að hafa Blönduvirkjun nálægt gagnveri, góðar ljósleiðartengingar, skipulagt gagnaverssvæði í eigu sveitarfélagsins og lítil náttúruvá.
Forsvarsmenn Greenstone voru á sama máli því þeir skoðuðu fjölmarga álitlega staði víða um land áður en þeir festu augastað sinn á Blönduós, fyrir hönd bandaríska fyrirtækisins. Að sögn Arnars Þórs hafa fleiri aðilar sýnt áhuga á að reisa gagnaver á svæðinu en ekkert af því er í hendi.