Blöndustöð á meðal fyrirmyndarfyrirtækja
Sex fyrirtæki hlutu viðurkenningu sem fyrirmyndarfyrirtæki á ráðstefnunni Bætt vinnuumhverfi, betra líf - áhættumat og forvarnir eru leiðin, sem Vinnueftirlitið stóð fyrir á Grand hóteli 21. október.
Fyrirtækin sem fengu virðurkenningu eru: Landsvirkjun Blöndustöð, Héraðsverk Egilsstöðum, Actavis Hafnarfirði, Heilbrigðisstofnun Þingeyinga og Leikskólarnir Eyrarskjól og Sólborg Ísafirði.
Í rökstuðningi vegna viðurkenningar til Blöndustöðvar Landsvirkjunar á
Vinnuverndarráðstefnunni 2008 segir eftirfarandi:
Hjá Landsvirkjun – Blöndustöð vinna um það bil 13 starfsmenn. Þar er skýr starfsmannastefna sem tekur mið af vinnuverndarsjónarmiðum og þeim fylgt eftir með aðgerðum. Þar er virk öryggisnefnd sem fundar reglulega. Á starfsmannafundum er alltaf byrjað á að fara yfir stöðu mála varðandi öryggismál.
Blöndustöð var með í tilraunaverkefni Vinnueftirlitsins í gerð áhættumats 2005 og var vel að verki staðið þá, en stöðin endurtók eða yfirfór áhættumatið aftur 2007.
Í Blöndustöð er Landsvirkjun að innleiða OHSAS 18001 Stjórnkerfi fyrir öryggis og vinnuumhverfi. Rík áhersla er lögð á að undirverktakar sem koma inná svæði fyrirtækisins fylgi sömu öryggiskröfum og almennir starfsmenn stöðvarinnar. Dæmi eru til þess að yfirmenn stöðvarinnar hafi stöðvað vinnu undirverktaka vegna verklags.
Í þrjá mánuði yfir sumartímann starfa u.þ.b. 25 ungmenni í og við stöðina og lögð er áhersla á þau fái fræðslu og menntun í vinnuvernd áður en þau hefja störf. Mörg þessara ungmenna eru í sinni fyrstu vinnu og fá þar af leiðandi mikilvæga leiðsögn í upphafi síns vinnuferils.
Tafla sem sýnir slysalausa daga er í inngangi starfsmannabyggingar. Og eru starfsmenn þannig minntir beint á mikilvægi vinnuverndar.
Landsvirkjun Blöndustöð er að mati Vinnueftirlitsins góður vinnustaður þar sem vellíðan starfsmanna þeirra er höfð að leiðarljósi og eru forvarnir mikilvægur þáttur þar í og því veitum við þeim viðurkenningu hér í dag.