Bókasafnið Dalsmynni opið á ný

Íbúar Húnavatnshreppi geta nú farið að auka lestur góðra bóka því Bókasafnið í Dalsmynni opnaði þann 1. nóvember sl. Í vetur verður opið á safninu einu sinni í viku, á þriðjudagskvöldum frá kl 20-22.

 

Stefnt er að því að hafa upplestra eða aðrar áhugaverðar uppákomur í vetur en notaleg aðstaða er fyrir hreppsbúa til að hittast og fá sér bækur til lestrar. Kaffi verður á könnunni og er  vonast til þess að sem flestir láti sjá sig.

Fleiri fréttir