Börn látin sitja á gólfi rútu frá Blönduósi til Reykjavíkur
Börnum var skipað að sitja á gólfi rútu á leiðinni frá Blönduósi til Reykjavíkur, þar sem bílstjórinn tróð alltof mörgum farþegum í rútuna og brúkaði munn við þá sem mótmæltu, segir á Pressunni.is. Að auki voru fleiri en tveir látnir sitja í sumum sætum og samnýta öryggisbelti. Umrætt atvik átti sér stað fyrir tæpum tveimur vikum og hefur fyrirtækið Sterna hefur beðist velvirðingar á atvikinu.
Foreldrar barnanna mjög ósáttir vegna framferðis rútubílstjóra sem braut reglur fyrirtækisins sem og umferðarlög og segjast nokkrir foreldrar á Blönduósi hafa ítrekað kvartað vegna sambærilegra atvika.
„Þegar þau voru að nálgast Bifröst var þeim sagt að tvö þeirra þyrftu að skiptast á að sitja á gólfinu það sem eftir væri ferðarinnar og þremur börnum var skipað að sitja saman í tveggja manna sæti,“ segir foreldri í samtali við Pressuna.
Bjarni Björnsson stjórnarformaður Sterna segir málið leiðinlegt og þykir miður að þetta hafi gerst. Bílstjórar megi alls ekki taka of marga farþega í bílana og þetta sé brot á vinnuferli bílstjóra fyrirtækisins. Ef of mikill fjöldi ætlar með bílnum sendum annan bíl á staðinn og er það á ábyrgð bílstjórans að óska eftir öðrum bíl.
„Auðvitað ætti bílstjóri aldrei að brúka munn við kúnnann og allra síst börn,“ segir Bjarni. Það hefur verið rætt við viðkomandi bílstjóra og hefur framkvæmdastjóri Sterna beðist afsökunar fyrir hönd bílstjórans og fyrirtækisins.