Bráðaaðgerðir til að efla leigumarkað
Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur lagt fram á Alþingi þingsályktun um bráðaaðgerðir til að efla leigumarkað. Meðal tillagna er að Íbúðalánasjóði verði gert að koma íbúðum í útleigu, eða selja þær til leigufélaga, svo fljótt sem verða má eftir að sjóðurinn eignast þær.
Helstu atriði tillagnanna eru eftirfarandi:
1. Lagt verði fram frumvarp til laga um nýjar húsnæðisbætur sem taki mið af fjölskyldustærð og tekjum og tryggi sambærilegan stuðning við leigjendur og eigendur. Þannig verði bundið enda á það óréttlæti að opinberir aðilar styðji betur við bak fjölskyldna sem búa í eigin húsnæði en þeirra sem leigja.
2. Ríkisstjórnin gangist fyrir samkomulagi við sveitarfélögin og aðila vinnumarkaðarins um veitingu stofnstyrkja til leigufélaga sem skuldbinda sig til langtímareksturs á leiguhúsnæði.
3. Ónýttar lóðir ríkisins verði boðnar fram til byggingar leiguíbúða.
4. Íbúðalánasjóði verði gert að koma íbúðum í útleigu, eða selja þær til leigufélaga, svo fljótt sem verða má eftir að sjóðurinn eignast þær.
5. Byggingarreglugerð verði endurmetin til að greiða fyrir byggingu minni íbúða til leigu.
6. Tekjur vegna útleigu einnar íbúðar verði undanþegnar fjármagnstekjuskatti. Einnig verði tryggt að slíkar tekjur skerði ekki bætur almannatrygginga. Skilyrði verði að leigan sé til almennrar húsaleigu til a.m.k. 12 mánaða.