Brautskráning FNV
Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki verður slitið nk. laugardag kl. 13:00 í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Prófsýning verður á morgun föstudaginn 25. maí kl. 09:00-10:00.
Á haustönn 2011 voru 405 nemendur í skólanum en á vorönn 2012 hafa þeir verið 532. Alls eru 65 nemendur að ljúka námi á laugardaginn og skiptast eftir brautum á þennan veg:
- Af félagsfræðabrautum 12
- Húsgagnasmíði 2
- Húsasmíði 7
- Málabraut 2
- Úr meistaranámi 11
- Náttúrufræðibraut 14
- Rafvirkjun 1
- Starfsbraut 1
- Viðskipa-hagfræðibraut 5
- Viðskiptabraut 1
- Vélsmíði 1
- Viðbótarnámi til Stúdentsprófs 5
- Vélstjórnarbraut 5
Tveir einstaklingar ljúka námi af fleiri en einni braut.
Allir velunnarar skólans eru velkomnir.