Breyting á aðalskipulagi Húnavatnshrepps

Sveitarstjóri Húnavatnshrepps hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að gerð hefur verið tillaga að breytingu á aðalskipulagi Húnavatnshrepps 2010-2022 vegna efnistökusvæðis í landi Æsustaða í Langadal, þar sem skilgreint er nýtt efnistökusvæði norðan hringvegar.

Samkv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 verður tillagan til kynningar á skrifstofu Húnavatnshrepps mánudaginn 24. september 2012 frá kl. 13.00- 15.00.

Samkv. 40. gr skipulagslaga nr. 123/2010 verður einnig til kynningar deiliskipulagstillaga af efnistökusvæði í landi Æsustaða.

 

Fleiri fréttir