Breytingar á dýralæknaþjónustu í Austur- og Vestur-Húnavatnssýslum

Matvælastofnun hefur gert þjónustusamning við Dýralæknaþjónustu Stefáns Friðrikssonar ehf. á þjónustusvæði 4 svonefndu, sem tekur til Húnaþings vestra, Blönduósbæjar, Skagabyggðar, Sveitarfélagsins Skagastrandar og Húnavatnshrepps. Þetta var gert á grundvelli nýrrar matvælalöggjafar.

 

Ný matvælalöggjöf um hollustuhætti og eftirlit tók gildi hér á landi 1. mars 2010 en breytingar vegna framleiðslu búfjárafurða tóku gildi þann 1. nóvember sl. Löggjöfin er samhljóða þeirri sem gekk í gildi í Evrópu árið 2006 en sama löggjöf á að gilda um matvæli í öllum ríkjum Evrópska Efnahagssvæðisins (EES).

Nýju matvælalöggjöfinni fylgja margvíslegar breytingar sem taka einnig til dýralæknaþjónustu, t.d. var héraðsdýralæknum fækkað úr 14 í 6 og fækkaði umdæmum þeirra sem því nemur. Til að tryggja dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum var innleidd reglugerð sem „ætlað er að tryggja dýraeigendum nauðsynlega almenna dýralæknaþjónustu og bráðaþjónustu við dýr á landsvæðum þar sem fjöldi dýra og/eða verkefni dýralækna eru af skornum skammti.“ (1. gr. laga nr. 846/2011).

 

Þjónustusamningur undirritaður

Fyrir síðustu mánaðarmót auglýsti Matvælastofnun eftir dýralæknum á öllum þjónustusvæðum til að gera við þjónustusamninga. Þegar nýja löggjöfin gekk í gildi þann 1. nóvember var búið að gera samninga á öllum svæðum nema í Austur- og Vestur-Húnavatnssýslum, þar sem engar umsóknir bárust. Þá var haft samband við Stefán Friðriksson sem er með Dýralæknaþjónustu á Sauðárkróki, en hann hefur áður starfað sem héraðsdýralæknir í Austur-Húnaþingsumdæmi með aðsetur á Blönduósi og er því svæðinu kunnugur.

„Ég sótti ekki um þar sem ég vissi að það þætti æskilegra að viðkomandi dýralæknir væri með starfstöð innan svæðisins, en þegar enginn sótti um báru þeir þetta undir mig. Ég ákvað að láta reyna á það,“ sagði Stefán í samtali við Feyki.

 

Nánari umfjöllun um málið er að finna í næsta tölublaði Feykis sem kemur út nk. fimmtudag.

 

 

 

 

Fleiri fréttir