Breyttar reglur um takmörkun á samkomum

Samkvæmt auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem tekur gildi á miðnætti í kvöld verða reglur um nálægðartakmörk í framhalds- og háskólum rýmkaðar og sömuleiðis í íþróttum. Að öðru leyti gildir áfram meginreglan um 2 metra nálægðarmörk.

Við aðstæður þar sem eðli starfsemi krefst meiri nálægðar milli einstaklinga en tveggja metra og í almenningssamgöngum þar sem ferð varir í 30 mínútur eða lengur skal nota andlitsgrímu. Hjúkrunarheimilum, öðrum heilbrigðisstofnunum og sambærilegum stofnunum er gert skylt að setja reglur um starfsemi sína, svo sem um heimsóknir utanaðkomandi að heimilum og stofnunum. Fjöldatakmörk miðast áfram við 100 manns að hámarki.

Eins og fram kemur í auglýsingu ráðherra er rík áhersla lögð á einstaklingsbundnar sóttvarnir og almennar smitvarnir með tíðum og reglubundnum þrifum þar sem fólk kemur saman.

Nálægðartakmörkun í framhalds- og háskólum

Í framhalds- og háskólum verður heimilt að hafa 1 metra á milli einstaklinga án þess að andlitsgrímur séu notaðar. Þar skal sótthreinsa sameiginlegan búnað og snertifleti minnst einu sinni á dag og áhersla skal lögð á einstaklingsbundnar sóttvarnir.

Nálægðartakmörkun í íþróttum

Þrátt fyrir meginregluna um 2 metra nálægðartakmörkun verða snertingar heimilar milli íþróttafólks á æfingum og í keppnum. Aftur á móti skal virða 2 metra regluna í búningsklefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. Aðrir, meðal annars þjálfarar, starfsmenn og sjálfboðaliðar, skulu ávallt virða 2 metra regluna. Íþrótta- og ólympíusamband Íslands skal setja sérsamböndum sínum nánari reglur í samráði við sóttvarnalækni, meðal annars um einstaklingsbundnar sóttvarnir, sótthreinsun búnaðar, framkvæmd æfinga og keppna.

Sjá nánar á stjornarradid.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir