Búist við hvassviðri eða stormi síðdegis
Sunnan 10-15 m/s og skúrir er á Ströndum og Norðurlandi vestra. Hvessir síðdegis, suðvestan 13-23 undir kvöld, hvassast A-til og úrkomumeira. Hægari í nótt en gengur í norðan 10-18 með rigningu á morgun. Hiti 3 til 9 stig en 2 til 7 á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Vestanátt, víða 10-15 m/s, en 15-23 N-lands, hvassast á annesjum. Slydda eða snjókoma fyrir norðan, en rigning við sjávarmál. Skúrir eða slydduél V-lands en yfirleitt þurrt á S- og A-landi. Fer að lægja síðdegis og styttir upp N-lands. Hiti 0 til 7 stig, mildast SA-lands.
Á laugardag:
Suðaustan og síðar austan 5-10 m/s. Rigning á SA-verðu landinu, stöku skúrir eða él V-til en víða þurrt N- og NA-lands. Hiti 0 til 7 stig að deginum.
Á sunnudag:
Norðaustan 8-15 m/s NV-til, annars hægari vindur. Rigning eða slydda með köflum, en þurrt SV-lands. Hiti breytist lítið.
Á mánudag:
Norðaustanátt og víða rigning eða slydda. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast S-lands.
Á þriðjudag:
Norðaustanátt og rigning með köflum, en úrkomulítið á SV- og V-landi.