Burðarþol ábótavant og of mikill þungi vagnlestar er brú yfir Vatnsdalsá hrundi
Rannsóknarnefnd samgönguslysa gaf, í upphafi vikunnar, út skýrslu um atvik sem átti sér stað er brú yfir Vatnsdalsá við bæinn Grímstungu hrundi undan þunga vörubifreiðar með festivagn. Rannsókn málsins leiddi í ljós að þungi vagnlestarinnar var vel yfir leyfðri heildarþyngd ökutækja á brúnni. Við rannsóknina komu einnig í ljós ýmsir annmarkar á öryggismálum og gerir nefndin þrjár tillögur í öryggisátt sem birtar eru í skýrslunni.
Burðarþol brúa og útboðsgögn
Við rannsókn málsins kom m.a. í ljós að öryggi burðarþols brúarinnar var ábótavant. Að mati Nefndarinnar er mikilvægt að tryggt sé að brýr þoli þann þunga sem leyfður er. Við rannsókn þessa kom einnig í ljós að heilbrigðis- og öryggisáætlun sem skilað var inn til verkkaupa, var ófullnægjandi og slysið var ekki tilkynnt til Vinnueftirlits. Í skýrslunni segir að nefndin leggi til við Vegagerðina að taka þetta mál til sérstakrar skoðunar í ljósi þess að víða eru eldri brýr enn í notkun.
Hægt er að nálgast skýrsluna HÉR