Búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum verði jafnað

Þingflokkur Bjartrar framtíðar hefur lagt fram þingsályktunartillögu um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum. Í greinagerð frumvarpsins kemur fram að tillagan hafi ekki náð fram að ganga þegar hún var flutt í fyrra, þrátt að hafa hlotið jákvæða efnislega umfjöllun hjá velferðarnefnd sem lagði til að það yrði samþykkt óbreytt.

Þá kemur fram að mikilvægt sé fyrir börn að eiga góð samskipti við báða kynforeldra sína. Jafnan er litið svo á, til að mynda í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, að slík samskipti séu ein af grundvallarréttindum barna. Lagaþróun síðustu áratuga hefur verið á þá leið að jafna stöðu foreldra svo að foreldrar taki jafna ábyrgð á umönnun og velferð barns.

Loks segir að það sé hag barna fyrir bestu að foreldrar sem kjósa að annast um þau á tveimur heimilum í góðri sátt búi við sambærileg skilyrði, en ekki sé hvatt til ágreinings með ójafnri stöðu heimilanna. Hér er lagt til að kannað verði með hvaða hætti rétt sé að löggjafinn bjóði þeim foreldrum sem kjósa að ala upp börn sín saman, þrátt fyrir að þeir búi ekki saman, upp á viðeigandi lagalega umgjörð sem styður og hvetur foreldrana í þessari viðleitni sinni, enda sé það barni fyrir bestu.

Fleiri fréttir