Byggðastofnun hlýtur jafnlaunavottun VR

Í gær var Byggðastofnun afhent staðfesting á því að hún hafi hlotið jafnlaunavottun VR og því önnur í röð íslenskra ríkisstofnana til að ná þessum áfanga. Þar með er staðfest að búið sé að kerfisbinda launaákvarðanir, koma upp jafnlaunakerfi samkvæmt kröfum jafnlaunastaðals og að nú verði kerfisbundið fylgst með því hjá stofnuninni að starfsfólk sem vinnur sömu eða jafnverðmæt störf  hafi sambærileg laun óháð kynferði. Jafnlaunavottun VR er fyrir öll fyrirtæki og stofnanir, burtséð frá stéttarfélagsaðild starfsmanna.

Það var Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, sem afhenti Aðalsteini Þorsteinssyni, forstjóra Byggðastofnunar, vottunina við athöfn í gær og sagðist við það tækifæri fagna því að Byggðastofnun hafi ákveðið að taka þetta mikilvæga skref og sækjast eftir Jafnlaunavottun VR.

-Við verðum öll, stofnanir og fyrirtæki sem og stéttarfélög, að leggja okkar af mörkum til að koma á jafnrétti kynjanna á íslenskum vinnumarkaði. Ég vona að fleiri opinberar stofnanir fylgi fordæmi Byggðastofnunar og taki þátt í þessu verkefni með okkur, sagði Ólafía.

Aðalsteinn segist telja þetta mjög merkilegan áfanga í starfi stofnunarinnar, og til þess fallið að gera hana að enn betri vinnustað og bæta ímynd hennar enn frekar.

-Þessi faglega úttekt er í góðu samræmi við þá vinnu sem unnin hefur verið í launa- og mannauðsmálum innan stofnunarinnar á undanförnum árum og staðfestir það sem við höfum talið okkur vita, að sömu laun eru greidd hér fyrir jafnverðmæt störf. Kynbundinn launamunur er meinsemd í íslensku þjóðfélagi og jafnréttismál eru að mínu mati meðal mikilvægustu byggðamála, segir Aðalsteinn og bendir á að kynbundinn launamunur sé til þess fallinn að veikja grundvöll byggðar hvar sem hann er að finna, og sé eflaust meðal margra ástæðna þess að sumstaðar hallar á konur í íbúafjölda svæða. -Leiðrétting á þessu misrétti kemur ekki af sjálfu sér, segir Aðalsteinn.

Sjá nánar á vef Byggðastofnunar

Fleiri fréttir