Bylgjan yfir Þverárfjallið
Í síðustu viku var settur upp nýr endurvarpi fyrir Bylgjuna á Hvammshlíðarfjalli og þjónar hann stærstum hluta vegarins yfir Þverárfjall milli Skagafjarðar og Húnavatnsýslu. Þessi sendir er á 89,7 MHz og er Bylgjan nú eina útvarpsstöðin sem næst á stærstum hluta þessa fjölfarna fjallvegs.
Þá var einnig nýlega lokið við uppsetningu á Bylgjuendurvarpa á Grenjadalsfelli í Vestur-Húnavatnssýslu. Sá sendir er á 104,5MHz og bætir hann þjóðvegadekkningu Bylgjunnar frá Miðfirði að Blönduósi.