Contalgen Funeral með mörg járn í eldinum

Skagfirska hljómsveitin Contalgen Funeral hefur sent frá sér glænýtt myndband við lagið Charlie, í leikstjórn Stefáns Friðriks Friðrikssonar. 

Hljómsveitin, sem gaf út stuttskífu á dögunum og finna má á gogoyoko.com, hefur verið dugleg að spila fyrir landann upp á síðkastið og mun koma fram á Bar 11 á morgun, laugardag. Aðgangur verður ókeypis.

  • Hljómsveitina skipa:
  • Andri Már Sigurðsson - Söngur og Gítarbanjo
  • Gísli Þór Ólafsson - Bassi
  • Bárður Smárason - Básúna
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir - Söngur og skeiðar
  • Sigfús Arnar Benediktsson - Trommur
  • Kristján Vignir Steingrímsson - Gítar

Hér má sjá nýja myndbandið þeirra, Charlie, sem tekið var upp síðsumars í Skagafirði.

Fleiri fréttir