Dagur atvinnulífsins á Norðurlandi vestra
Dagur atvinnulífsins á Norðurlandi vestra verður haldinn miðvikudaginn 5. desember í Kántrýbæ á Skagaströnd, kl. 14:00-17:00. Þetta er í fjórða sinn sem Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra standa fyrir Degi atvinnulífsins á starfssvæði sínu. Viðburðinum er ætlað að skapa vettvang til kynningar á starfsemi sem fram fer á svæðinu og umræðu um atvinnumál.
Dagskrá:
Kl. 14:00 Setning: Bjarni Jónsson, formaður SSNV
Kl. 14:10 Sveiflur í starfsmannaþörf. Árstíðabundin eftirspurn og aðlögun starfsemi og þjónustu.
Framsögu flytja: Ágúst Andrésson forstöðumaður Kjötafurðastöðvar KS, Jóhann Albertsson gestgjafi á Sveitasetrinu Gauksmýri og Friðrik Pálsson framkvæmdastjóri.
Kl. 15:30 Kynning á fyrirtækjum sem tilnefnd hafa verið til Hvatningarverðlauna SSNV atvinnuþróunar 2012.
Kl. 16:45 Vaxtarsamningur Norðurlands vestra 2011-1013. Katrín María Andrésdóttir, SSNV atvinnuþróun.
Kl. 16:55 Hvatningarverðlaun SSNV afhent.
Svo sem sjá má lýkur dagskránni með afhendingu Hvatningarverðlauna SSNV atvinnuþróunar. Verðlaunin eru í senn viðurkenning fyrir góðan árangur og hvatning til áframhaldandi starfsemi viðkomandi fyrirtækis / félags / einstaklings.
Markmið verðlaunanna er að hvetja til nýsköpunar og vekja athygli á því sem vel er gert á Norðurlandi vestra. Að þessu sinni er sjónum beint að fyrirtækjum og starfsemi í Austur-Húnavatnssýslu.
Úr hópi margra verðugra hafa eftirtaldir aðilar verið tilnefndir til verðlaunanna árið 2012.
SAH Afurðir ehf var stofnað 1. janúar 2006. Fyrirtækið byggir á grunni Sölufélags Austur-Húnvetninga en fyrsta sláturhús þess félags var byggt á Blönduósi 1908. Helstu hluthafar eru Sölufélag Austur-Húnvetninga og Kjarnafæði. Markmið SAH Afurða er að veita bændum úrvalsþjónustu á samkeppnishæfu verði hvað varðar slátrun og sölu kjötafurða. Starfsmenn eru um 40 en fjölgar í um 130 manns í sláturtíð á haustin. Gert er ráð fyrir að haustið 2012 verði slátrað rúmlega 100 þúsund fjár.
Ullarþvottastöð Ístex á Blönduósi tók til starfa árið 2004 en stöðin var flutt þangað frá Hveragerði. Ístex kaupir ullina beint frá bændum, hún er þvegin í þvottastöð Ístex á Blönduósi og er spunnin í band í spunaverksmiðjunni í Mosfellsbæ. Ullarþvottastöðin þvær alla þá ull sem til fellur á landinu eða um 1.000 tonn á ári. Að meðaltali starfa um 6-7 manns hjá stöðinni á ársgrundvelli.
Sjávarlíftæknisetrið BioPol ehf var stofnað árið 2007 af Sveitarfélaginu Skagaströnd. Markmiðið með stofnun fyrirtækisins var að koma á fót þekkingarsetri þar sem rannsóknir á lífríki Húnaflóa væru í forgrunni. Árið 2010 tók fyrirtækið í notkun nýja og vel útbúna rannsóknastofu þar sem hægt er að vinna flestar þær rannsóknir sem í gangi eru. Hjá fyrirtækinu starfa nú níu manns í margvíslegum sjávarrannsóknum.
Blöndubyggð ehf var stofnað árið 2007. Sama ár opnaði fyrirtækið veitingahús að Norðurlandsvegi 4 Blönduósi sem nú ber nafnið Potturinn Restaurant. Fyrirtækið rekur einnig Félagsheimili Blönduóss og kaffihúsið Við Árbakkann en þar er skólamötuneyti fyrir grunnskólanemendur. Í júní 2011 tók fyrirtækið í notkun Eyvindarstofu sem er til húsa á efri hæð veitingahússins Pottsins Restaurants. Starfsmenn eru 15-18 yfir sumarmánuðina en 7-8 að vetri til.
Menningarfélagið Spákonuarfur var stofnað árið 2007. Markmið félagsins er styrkja stöðu svæðisins á sviði menningar og ferðaþjónustu. Félagið hefur staðið fyrir og komið að ýmsum uppákomum á sviði menningar og sögu síðan það var stofnað. Félagið opnaði Spákonuhof þann 30. júní 2011 og er þar unnið með Þórdísi spákonu, sem uppi var á seinni hluta 10. aldar. Sama ár kom út bók um sögu Þórdísar spákonu. Einnig geta gestir látið spá fyrir sér í Spákonuhofinu.
Hefð er fyrir því að verðlaunagripurinn fyrir hvatningaverðlaunin sé unninn af listamanni á svæðinu. Að þessu sinni er það Erlendur F. Magnússon, listamaður á Blönduósi, sem hannar og smíðar gripinn. Erlendur er lærður húsasmiður en var einnig við nám í Handíða- og myndlistaskóla Íslands og hefur tekið þátt í nokkrum sýningum. Hann sinnti kennslu um árabil og var frumkvöðull að skákkennslu í grunnskólum.
Frá árinu 1984 hefur Erlendur unnið við fjölbreytt hönnunar-, útskurðar- og sérsmíðaverkefni á eigin verkstæði og við hönnun og byggingu húsa víða um land. Helstu verkefni hans eru: Safnahús, hótel og fl. við Geysi í Haukadal, Fjörukráin í Hafnarfirði, Eden í Hveragerði, Ásgarður við Hvolsvöll og Ingólfsskáli í Ölfusi. Þá hefur hann unnið við endurbætur gamalla húsa og fundið þeim nýtt hlutverk til framtíðar.
Hvatningaverðlaun SSNV atvinnuþróunar hafa verið veitt frá árinu 1999. Eftirtaldir aðilar hafa hlotið verðlaunin:
- Árið 2011 - Hlíðarkaup á Sauðárkróki
- Árið 2010 - Ferðaþjónustan á Brekkulæk í Miðfirði
- Árið 2009 - Léttitækni ehf á Blönduósi
- Árið 2008 - Sjávarleður hf á Sauðárkróki
- Árið 2007 - Siglufjarðar Seigur - bátasmiðja.
- Árið 2006 - Forsvar ehf á Hvammstanga.
- Árið 2004 - Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi.
- Árið 2003 - Háskólinn á Hólum.
- Árið 2002 - Síldarminjasafnið á Siglufirði.
- Árið 2001 - Hestamiðstöðin Gauksmýri.
- Árið 2000 - Vesturfarasetrið á Hofsósi.
- Árið 1999 - Kántrýbær á Skagaströnd.
/Fréttatilkynning