Dagur atvinnulífsins á Norðurlandi vestra

Í gær var Dagur atvinnulífsins haldinn á vegum SSNV atvinnuþróunar, í Dæli í Húnaþingi vestra. Við það tækifæri voru afhent Hvatningarverðlaun SSNV. Af þeim fimm aðilum sem tilnefndir voru til verðlauna var það Selasigling ehf. á Hvammstanga sem hreppti hnossið, málverk eftir Jón Eiríksson á Búrfelli.

Aðrir aðilar sem tilnefndir voru, sem voru Farfuglaheimilið að Ósum, Sjávarréttarveitingastaðurinn á Geitafelli, Sæluostur úr sveitinni og Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, fengu bókina „Ár og kýr“ með 365 kúamyndum eftir Jón á Búrfelli.

Fleiri fréttir