Dagur íslenskrar tungu í Húnavallaskóla
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla
20.11.2013
kl. 11.40
Í tilefni af Degi íslenskrar tungu hittust nemendur leik- og grunnskólans á Húnavöllum sl. föstudagsmorgun og héldu hátíð. Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg. Nemendur fluttu ljóð, sögur, leikverk og söngatriði. Dagskránni lauk með fjöldasöng undir sterkri stjórn Þórunnar Ragnarsdóttur.
Fleiri myndir frá viðburðinum er að finna á heimasíðu Húnavallaskóla.