Dagur leikskólans haldinn hátíðlegur

Dagur leikskólans er haldin hátíðlegur um allt land í dag og eru leikskólar hér á Norðurlandi vestra þar ekki undanskildir.

Börn og starfsfólk á eldra stigi leikskólans Ársala ætla að fylkja liði í Skagfirðingabúð og taka lagið fyrir viðstadda kl. 10:30. Foreldrar eru hvattir til að koma og hlusta á barnahópinn. Einnig verður sveitarstjóra Skagafjarðar afhent veggspjald með gullmolum nemenda Ársala sem teknir voru saman af kennurum leikskólans um kl. 13.

Börn og kennarar í leikskólanum Birkilundi í Varmahlíð ætla í tilefni dagsins að ganga saman upp í Varmahlíðarskóla og syngja þar nokkur lög fyrir viðstadda kl 10:05. Foreldrar eru velkomnir með.

Foreldrar barna á Tröllaborg austan vatna, er boðið í „hábít“ í tilefni dagsins, eins og í fyrra.

Foreldrar barna á leikskólanum Barnabæ á Blönduósi er boðið að snæða morgunverð með börnum sínum, líkt og í fyrra. Einnig ætla börnin á Fjallabæ, ásamt kennurum, að ganga á Bæjarskrifstofuna um kl. 13 og afhenda bæjarstjóranum veggspjald í tilefni dagsins.

Leikskólinn Ásgarður á Hvammstanga verður opinn frá kl. 9-11 og 13-14:15 og gefst gestum og gangandi tækifæri til að skoða leikskólann og sjá þær breytingar sem unnið hefur verið að undanfarna mánuði, útfrá Flæði- hugmyndafræðinni.

Nemendur og kennarar Barnabóls opna listsýningu í Landsbankanum á Skagaströnd með fjölbreyttum verkum eftir nemendur á aldrinum 1-6 ára. Einnig verður farið á skrifstofu sveitarfélagsins þar sem afhent verður plakat með gullkornum  leikskólanemenda sem Félaga leikskólakennara og Félaga stjórnenda leikskóla hafa tekið saman.

Þess má geta að í febrúar fer af stað samstarfsverkefni  milli Leikskólans Barnabóls og Neslistamiðstöðvar í tilefni af 35 ára afmæli leikskólans þann 7. júní 2012. Hollenska listakonan AnneMarie von Splunter ætlar að gera heimildamynd um leik og starf nemenda Barnabóls. Myndin verður sýnd á Skagaströnd, sett á heimsíðu Neslistamiðstöðvar og hugsanlega sýnd á kvikmyndahátíðum.

 

Fleiri fréttir