Dagur leikskólans í Húnaþingi vestra og á Skagaströnd

Dagur leikskólans verður haldinn hátíðlegur í leikskólanum Ásgarði á Hvammstanga, leikskólanum á Borðeyri og Barnabóli á Skagaströnd.

Leikskólinn á Borðeyri og Ásgarður á Hvammstanga verða opnir fyrir gesti og gangandi í dag frá kl. 9 - 11 og 13 - 14. Nemendur í Tónlistaskóla Húnaþings vestra munu heiðra okkur á þessum degi og spila á hljóðfæri sín. Á heimasíðu Ásgarðs segir að spilað verður í skólanum á milli kl. 10 - 11 en á Borðeyri verður spilað öðru hverju yfir daginn. „Verið hjartanlega velkomin okkur finnst gaman að fá gesti,“ segir á heimasíðunni.

Nemendur Barnabóls á Skagaströnd verða með listsýningu í Landsbankanum á Skagaströnd í tilefni af degi leikskóla á Íslandi. Samkvæmt heimasíðu leikskólans tengist sýningin þema skólaársins „Móðurmálið mitt“ þar sem fjallað er um gömul og ný orð, tvítyngi og fleira. „Innilega velkomin á sýninguna sem mun standa yfir fram í mars,“ segir á heimasíðunni.

Fleiri fréttir