Dagur sauðfjárræktarinnar

Föstudagurinn 24. júní verður viðburðarríkur, en þá standa Landbúnaðarháskóli Íslands og Búnaðarsamtök Vesturlands (BV) fyrir Degi sauðfjárræktarinnar. Viðfangsefnið er íslenska sauðkindin og afurðir hennar. Þessi hátíð verður haldin á Hvanneyri í Borgarfirði og hefst kl. 10 og lýkur kl. 17.

Dagur sauðfjárræktarinnar er haldinn í tengslum við fjölþjóðlegt verkefni um fræðslu fyrir sauðfjárbændur sem Landbúnaðarháskóli Íslands leiðir (www.sheepskills.eu). Um er að ræða tveggja ára verkefni með sauðfjárbændum í fimm Evrópulöndum. Verkefninu er ætlað að stuðla að betri nýtingu á tækifærum sem felast í sauðfjárbúskap. Lögð er áhersla á framþróun og nýsköpun, svo sem í tengslum við landbúnaðartengda ferðaþjónustu og með þróun nýrra afurða eins og matvöru og handverks. Markmiðunum verður náð með aukinni fræðslu og símenntun.

Í tengslum við verkefnið hafa verið þróuð og haldin námskeið fyrir sauðfjárbændur á félagssvæði BV. Þessi námskeið verða einnig haldin um allt land á næstu árum. Einnig er unnið að gerð bókar um sauðfjárrækt. Bókin verður tilbúin í haust. Fræðsluefnið sem tekið er saman í tengslum við verkefnið verður öllum opið á heimasíðunni www.sheepskills.eu

Fleiri fréttir