Dagur sjálfboðaliðans | Frá UMFÍ

Sjálfboðaliðar að störfum á íþróttamóti. Mynd: umss.is
Sjálfboðaliðar að störfum á íþróttamóti. Mynd: umss.is

Árið 1985 ákváðu Sameinuðu þjóðirnar að 5. desember yrði helgaður sjálfboðaliðum og síðan þá hefur dagurinn verið haldinn hátíðlegur víða um heim ár hvert. Íþróttahreyfingin á Íslandi lætur sitt ekki eftir liggja og halda ÍSÍ og UMFÍ nú upp á daginn þriðja árið í röð. Við hvetjum íþróttahéruð og sérsambönd til að taka þátt með því að tilnefna sjálfboðaliða úr sínum röðum og lyfta þannig upp því góða fólki sem sinnir ómetanlegu starfi innan hreyfingarinnar. Svæðisstöðvar íþróttahéraða verða ykkur til halds og trausts við verkefnið og miðlun þess á hverju svæði. Í tilefni dagsins hlýtur svo einn sjálfboðaliði á hverju landsvæði viðurkenningu.

Markmiðið er að vekja athygli á mikilvægu starfi sjálfboðaliða og sýna þakklæti í verki fyrir dýrmætt framlag þeirra til íþróttahreyfingarinnar. Tilgangurinn er ekki að meta hver leggur mest af mörkum, heldur að beina kastljósinu að þessu frábæra fólki og minna á að framlag hvers og eins skiptir máli.

Á slóðinni hér að neðan getið þið tilnefnt sjálfboðaliða á ykkar starfssvæði, ásamt rökstuðningi, til og með 27. nóvember. Dregið verður úr tilnefningum fyrir hvert landsvæði í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 1. desember og niðurstöður kynntar í kringum Dag sjálfboðaliðans á miðlum íþróttahreyfingarinnar.

Sá sjálfboðaliði sem dreginn verður út á hverju landsvæði hlýtur lítinn þakklætisvott fyrir framlag sitt og verður jafnframt fjallað um hann á miðlum ÍSÍ og UMFÍ. Hver einstaklingur fer aðeins einu sinni í útdráttarpottinn, óháð því hversu margar tilnefningar hann fær.

Smelltu hér til að opna tilnefningarformið

Við hvetjum ykkur jafnframt til að deila slóðinni með félögum og öðrum innan ykkar vébanda. Því fleiri tilnefningar, því betur sést hversu öflugt sjálfboðaliðastarf er unnið um allt land.

Þegar nær dregur sendum við ykkur frekari upplýsingar, meðal annars þakkarkveðjur sem þið getið nýtt á eigin miðlum. umfi.is

Fleiri fréttir