Dagur Þór kominn til starfa

Dagur Þór Baldvinsson yfirhafnavörður. Mynd: skagafjordur.is.
Dagur Þór Baldvinsson yfirhafnavörður. Mynd: skagafjordur.is.

Nýr yfirhafnarvörður hóf störf hjá Skagafjarðarhöfnum þann 1. febrúar sl., Dagur Þór Baldvinsson. Dagur Þór er menntaður sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og mun í vor ljúka fjárnámi í APME verkefnastjórnun við Háskólann í Reykjavík með IPMA alþjóðlegri vottun. Yfirhafnarvörður starfar hjá Hafnarsjóði Skagafjarðar sem á og rekur tvær hafnir í Skagafirði, á Sauðárkróki og á Hofsósi og sinnir margvíslegum verkefnum. 

Í samtali við Feyki segir Dagur að starfið leggist ágætlega í hann við fyrstu sýn en fyrstu verkefni hans voru að gera reikninga fyrir janúar og kynnast starfseminni almennt. „Gunnar Steingrímsson fyrrverandi yfirhafnarvörður var með mér fyrstu þrjá dagana til að koma mér inn í starfið. Nokkrir smábátar lönduðu í vikunni 13.611 kg og var fiskurinn fullur af loðnu, létum við Hafrannsóknarstofnun íslands vita af því. í Hofsósi lönduðu smábátarnir samtals 9553 kg,“ segir Dagur sem vonast eftir góðu samstarfi við útgerðaraðila og smábátaeigendur í Skagafirði.

Fleiri fréttir