Dálítil rigning eða slydda sum staðar í dag

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er norðaustan 5-13 á annesjum, annars hægari vindur. Skýjað og sums staðar dálítil rigning eða slydda í dag, hiti 2 til 8 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag:

Austan og suðaustan 5-10 m/s. Dálítil rigning eða skúrir, en yfirleitt þurrt á N- og A-landi. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast SV-lands.

Á miðvikudag:

Sunnan 5-10 og lítilsháttar rigning, en skýjað með köflum og þurrt á NA-verðu landinu. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast NA-lands.

Á fimmtudag:

Suðvestanátt og stöku skúrir vestantil, en víða léttskýjað um landið austanvert. Hiti svipaður.

Á föstudag:

Vestlæg átt og dálitlar skúrir. Hiti yfirleitt 5 til 10 stig.

Á laugardag:

Austanátt og væta S-lands, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag:

Útlit fyrir norðanátt og kólnandi veður.

Fleiri fréttir