Dansviðburður á Skagaströnd
Skagi Dance Event sem saminn er, framleiddur og fluttur af Andrea RC Kasper ásamt þremur nemendum, Sigurlaugu Máney Hafliðadóttur, Sigurbjörgu Kötlu Valdimarsdóttur og Guðrúnu Önnu Halldórsdóttur verður sýndur í kjallara Kaupfélagsins á Skagaströnd dagana 20. – 23. október nk. og hefst klukkan 20 öll kvöldin.
Skyggnst verður í heim einangrunar, einmanaleika og þess að vera staddur einn og hefst með því að litið verður á kvikmynd, "Peninsula", sem er samstarfsverkefni milli dansara og kvikmyndaframleiðanda, Rebecca Levy í Bandaríkjunum og Andrea RC Kasper á Skagaströnd, og verður því fylgt eftir með lifandi flutningi.
Verkefnið er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra og Minningarsjóði um hjónin frá Garði og Vindhæli
Verð er kr. 1000-, fyrir fullorðna og 500-, fyrir grunnskólabörn.