Deiliskipulag Hólanessvæðisins á Skagaströnd til sýnis
Sveitarstjórn Skagastrandar samþykkti á fundi sínum 25. maí 2011 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Hólanessvæðisins á Skagaströnd samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagsuppdráttur, greinargerð og skráning húsa á Hólanessvæðinu verða til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar, Túnbraut 1-3 frá 27. júlí til 16. september 2011
Ennfremur er tillagan til sýnis á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagastrond.is.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skila til skrifstofu Skagastrandar fyrir 16. september 2011 og skulu þær vera skriflegar.